Foreldrar "svona skemmtileg -lætur mann hugsa mynd"

Mynd Ragnars Bragasonar Foreldrar var sýnd hér í Köben í gærkvöldi og ákváðum við fjölskyldan að skella okur og sjá myndina. Það er skemmst frá því að segja að myndin er stórgóð.Skemmtileg og raunsönn lýsing á lífinu og tilverunni heima á Íslandi. Rósa lýsti myndinni á eftirfarandi hátt "ekki bara skemmtileg - skemmtileg heldur svona skemmtileg -lætur mann hugsa mynd".                      Eftir sýninguna sat (stóð) svo leikstjórinn fyrir svörum og var sérlega gaman að heyra hann lýsa ferlinu og vinnunni við gerð myndarinnar. Einlægur og hreinskilinn karakter, greinilega með  mikinn metnað og húmor að mínu skapi.  WhistlingWhistlingWhistling  

Skora á þá sem ekki hafa séð þessa stórgóðu mynd að sjá hana. Sjálf hef ég ekki séð Börn og nú verð ég bara að komast til að sjá þá mynd líka.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband